Sem oft endranær er mikið um að vera í Hallgrímskirkju á sunnudagsmorguninn. Ástæða er til að hvetja fólk til að koma, vera með og njóta. Dagskráin er fjölbreytt og vönduð.
Fræðslustund kl. 10:00. Á sunnudaginn þann 14. október, sem er nítjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, hefst dagskráin á því að sr. Bjarni Þór Bjarnason, sem er prestur í Grafarvogskirkju og annast einnig enskar messur mánaðarlega í Hallgrímskirkju, segir frá siðbótarmanninum Lúther, konu hans Katarínu frá Bora og því umhverfi sem mótaði þau. Fræðslan hefst kl. 10.00 og er lokið tímanlega fyrir messu. Allir eru velkomnir og heitt á könnunni.
Messan og barnastarfið kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústdóttur. Fermingarbörn verða messuþjónar, en Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, kórstjóra. Organisti er cantor kirkjunnar og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Hörður Áskelsson. Á Suðursal kirkjunnar verður síðan kaffi á könnunni í messulok. Verið með í sókninni!
Birna Hjaltadóttir, 11/10 2007
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur og hugvekja. Á eftir er léttur hádegisverður á vægu verði í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 10/10 2007
Á miðvikudögum, allt árið um kring, kl. 08.00, er árdegismessa í kór Hallgrímskirkju. Nú í október, þegar daginn styttir og líður að aðventu, er gott að eiga kyrrláta stund í kirkjunni. Á morgun, miðvikudaginn 10. október, er það séra Jón Dalbú Hróbjartsson sem þjónar fyrir altari, Kristján Þorgeirsson flytur hugvekju og Dóra Þorkelsdóttir fer með bæn. Á eftir eigum við sameiginlega stund með morgunverði í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 9/10 2007
Alla þriðjudaga kl. 10.30 til 11.00 er fyrirbæn í kapellu Hallgrímskirkju. Annan hvern þriðjudag er gengið til altaris. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 8/10 2007
Fræðslumorgunn og messa í Hallgrímskirkju
Fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju hefjast að nýju á sunnudaginn með erindi dr. Sigríðar Þorgeirsdóttur sem hún nefnir: Guð sem karl eða kona - eða hvorugt? Guð hefur í sögu kristinna kenninga lengst af verið karl og faðir og Jesús sonur, bróðir og vinur. Á síðustu áratugum hafa femínískir guðfræðingar og heimspekingar leitað eftir kvenleika guðdómsins svo konur geti samsamað sig hinu guðlega líkt og karlar. Er þörf á guði karlleika eða kvenleika? Eða erum við vaxin upp úr persónugerðum guði? Dr. Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, reifar þessar spurningar á Fræðslumorgni í suðursal Hallgrímskirkju kl. 10.00. Á eftir er gengið til messu þar sem sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og hópi messuþjóna. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og félagar úr Mótettukórnum leiða söng. Samskot eru tekin til safnaðarstarfsins. Börnin eiga sína stund í norðursalnum undir leiðsögn Magneu Sverrisdóttur, djákna. Vertu með í sókninni.
Birna Hjaltadóttir, 4/10 2007
Við minnum á kyrrðarstundirnar okkar á fimmtudögum kl. 12.00. Á morgun, fimmtudaginn 4. október er kyrrðarstund að venju með orgelleik og hugvekju. Á eftir er léttur hádegisverður í safnaðarsal. Allir velkomnir.
Á laugardaginn 6. október er orgelandakt í hádeginu og byrjar kl. 12.00. Björn Steinar Sólbergsson mun leika á Klaisorgelið. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson fer með ritningarlestur og bæn. Enginn aðgangseyrir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 3/10 2007
Alla miðvikudaga allt árið um kring er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Gott er að eiga kyrrláta stund í kór Hallgrímskirkju árla dags og njóta birtunnar sem flæðir inn um kórgluggana. Á morgun, miðvikudaginn 3. október er það séra Kristján Valur Ingólfsson sem þjónar fyrir altari, Sigrún V. Ásgeirsdóttir flytur hugvekju og Ágústa Þorbergsdóttir fer með bæn. Á eftir messunni er morgunverður í safnaðarsalnum þar sem við eigum gott og uppbyggilegt samfélag. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 2/10 2007
Sunnudaginn 30. september, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er mikil hátíð í Hallgrímskirkju. Dagurinn hefst á norrænni messu og barnastarfi kl. 11.00. Biskup Kaupmannahafnar, Erik Norman Svendsen prédikar. Altarisþjónustuna annast biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson og séra Jón Dalbú Hróbjartsson ásamt lesurum frá öllum Norðurlöndunum og messuþjónum. Messan er lokaathöfn norræna höfuðborgarmótsins, sem er haldið hér um helgina og er hún opin öllum. Ræða biskupsins er þýdd á íslensku. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kl. 14.00 er ensk messugjörð í umsjá séra Bjarna Þórs Bjarnasonar. Jónína Kristinsdóttir er forsöngvari og leiðir almennan messusöng.
Birna Hjaltadóttir, 27/9 2007
Kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju eru byrjaðar aftur eftir sumarhlé. Á morgun, fimmtudaginn 27. september kl. 12.00 er kyrrðarstund með orgeltónlist og hugvekju/bæn. Léttur hádegisverður í safnaðarsal á eftir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 26/9 2007
Nýtt fjögurra kvölda námskeið um Biblíuna í daglega lífinu hefst miðvikudaginn 3. október kl. 20.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni: Lesum Biblíuna! Kennari er sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur. Að þessu sinni er áherslan lögð á innviði Biblíunnar, mismunandi þýðingar og stöðu apókrýfu ritanna, í tilefni þess að ný þýðing kemur út nú í október. Hinn siðræni þroski manneskjunnar í daglega lífinu verður hafður að leiðarljósi í þessari skoðunarferð um lönd ritningarinnar og dæmi úr Biblíunni skoðuð okkur til lærdóms. Skráning er á Biskupsstofu í síma 535 1500. Sjá www. kirkjan.is/leikmannaskoli.
Birna Hjaltadóttir, 26/9 2007