Hallgrímskirkja

 

Námskeið fyrir messuþjóna

Námskeið fyrir messuhópana í Hallgrímskirkju er haldið á morgun, miðvikudaginn 26. september kl. 20.00 - 22.00. Námskeiðinu stjórna prestar Hallgrímskirkju. Mætum öll!

Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007

Opið hús fyrir eldri borgara

Á morgun miðvikudaginn 26. september kl. 14.00 er opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Á dagskránni er ávarp og bæn, söngur, erindi Einars Benediktssonar, fyrrv. sendiherra um Barnahjálp Sameinuðu Þjóðanna, kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007

Árdegismessa

Á miðvikudögum allt árið um kring er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Messan stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Á þessum tíma ársins kemur sólin seinna upp og sendir geisla sína beint inn um kórgluggana í kirkjunni á meðan á messunni stendur. Gott er að eiga kyrrláta stund í árdagsbirtu sköpunar Drottins og byrja daginn í húsi hans. Á morgun, miðvikudaginn 26. september er það séra María Ágústsdóttir sem þjónar fyrir altari, Kristján Þorgeirsson flytur hugvekju, sr. Ása Björk Ólafsdóttir fer með bæn og Grétar Einarsson er forsöngvari. Á eftir messunni söfnumst við saman í safnaðarsalnum til morgunverðar. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007

Fyrirbænaguðsþjónusta í Hallgrímskirkju

Á þriðjudögum allt árið er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Annan hvern þriðjudag er altarisganga. Athöfnin tekur hálfa klukkustund. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 24/9 2007

Sálmar VII - Í tilhlökkun, gleði og lofgjörð

Á sunnudaginn 23. september kl. 17.00 eru orgeltónleikar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju í tónleikaröðinni “Sálmar”. Douglas Brotchie, organisti Háteigskirkju leikur orgeltónlist sem samin er í kring um þekkt sálmalög. Efnisskráin spannar tímann frá barokki til samtímans og inniheldur mjög ólikar útfærslur sálmalaga bæði í stíl og formi. Miðasala við innganginn - verð kr. 1.500.- og kr. 500.- fyrir nemendur.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 21/9 2007

Messa og barnastarf sunnudagsins

Á sunnudaginn 23. september, sem er sextándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Hörður Áskelsson. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 20/9 2007

Árdegismessa

Alla miðvikudaga er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Á morgun, miðvikudaginn 19. september, er það séra Birgir Ásgeirsson sem þjónar fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju, Vilhjálmur Grímsson fer með bæn og Sigurður Björnsson er forsöngvari. Komið og eigið notalega og kyrrláta stund áður en erill dagsins byrjar. Á eftir messunni er morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 18/9 2007

Fyrirbænamessa í Hallgrímskirkju

Alla þriðjudaga allt árið um kring er fyrirbænamessa í kapellu Hallgrímskirkju. Á morgun, þriðjudaginn 18. september, er fyrirbænamessa kl. 10.30. Bænastundin stendur yfir í hálfa klukkustund. Annan hvern þriðjudag er gengið til altaris. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 17/9 2007

Messa og barnastarf í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 16. september, sem er fimmtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Fermingarbörn aðstoða, en fermingarundirbúningurinn er hafinn og eru fermingarbörn og fjölskyldur þeirra boðin sérstaklega til þessarar messu. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Eftir messu er boðið upp á kaffisopa og ávaxtasafa.

Birna Hjaltadóttir, 13/9 2007

Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju

Kyrrðarstundirnar okkar eru byrjaðar aftur eftir sumarhlé. Á morgun, fimmtudaginn 13. september, er kyrrðarstund kl. 12.00 með sama sniði og venjulega: Orgelleikur og hugvekja. Boðið er upp á léttan hádegisverð á eftir. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 12/9 2007

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...