Hallgrímskirkja

 

Séra Birgir Ásgeirsson settur í embætti prests í Hallgrímskirkju

Í messu í Hallgrímskirkju kl. 11.00 næstkomandi sunnudag mun séra Sigurður Pálsson setja séra Birgi Ásgeirsson í embætti prests í Hallgrímsprestakalli. Séra Birgir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði og Magneu Sverrisdóttur djákna. Mótettukór Hallgrímskirkju flytur Magnificat eftir Rachmaninoff undir stjórn Harðar Áskelssonar. Fermdur verður Ólafur Daði Helgason, Suðurgötu 20, Sandgerði. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna.

Tónleikar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju

Barokktónleikar á föstu verða fluttir kl. 17.00 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Flytjendur eru Hymnodia, Kammerkór Akureyrarkirkju og hópur barokkhljóðfæraleikara frá Svíþjóð. Einsöngvari er Anna Zander mezzosópran. Stjórnandi Eyþór Ingi Jónsson.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 30/3 2006

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 26. mars 2006, sem er fjórði sunnudagur í föstu, er messa með altarisgöngu kl. 11.00.

Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna.

Kl. 16.00 eru tónleikar Schola Cantorum. Flutt verða verk eftir Heinrich Schütz. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Birna Hjaltadóttir, 23/3 2006

Schütz-tónleikar í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 26. mars klukkan 16.00, heldur kammerkórinn Schola cantorum tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem eingöngu verða flutt verk eftir Heinrich Schütz, merkasta tónskáld Þýskalands á tímum snemmbarokksins. Þetta eru fyrstu tónleikar kórsins eftir að hann var gerður að atvinnukór og útnefndur “Tónlistarhópur ársins 2006” hjá Reykjavíkurborg.

Lesa áfram …

Sverrir Jónsson, 20/3 2006

Sunnudagur 19. mars 2006

Fræðslumorgunn kl.10:00. Verndum bernskuna: Dr. Ragnhildur Bjarnadóttir, uppeldisfræðingur flytur erindi. Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr. Bára Friðriksdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Barnastarfið í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu.

< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Birna Hjaltadóttir, 17/3 2006

Fermingar vorið 2006 - Minnisblað

Þriðjudagur 4. apríl kl.15.00: Próf

Fimmtudagur 6. apríl: Viðtöl við fermingarbörn. Þau fá leyfi skólans til að fara úr tímum vegna viðtalanna.

Mánudaginn 10. apríl kl. 15.00: Æfing fyrir börnin sem eiga að fermast 17. apríl.

Mánudaginn 17. apríl (á annan páskadag) eiga fermingarbörnin að vera mætt í siðasta lagi kl. 10.30.

Þriðjudaginn 18. apríl kl. 15.00: Æfing fyrir börnin sem eiga að fermast 23. apríl.

Sunnudaginn 23. apríl eiga fermingarbörnin að vera mætt í síðasta lagi kl. 10.30

Birna Hjaltadóttir, 15/3 2006

Sunnudagurinn 12. mars 2006

Fræðslumorgunn kl.10:00. Er kirkjan á undanhaldi? Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á Biskupsstofu flytur erindi.

Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti Hörður Áskelsson. Kaffisopi eftir messu.

Klassísk messa kl. 20:00. Lux Aeterna, sem er áhugahópur um klassíska messu og iðkun gregorssöngs, stendur fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í Hallgrímskirkju. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Kynning og æfing á messunni verður hálfri klukkustund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19:30 í Hallgrímskirkju. Prestur að þessu sinni er sr. Sigurður Pálsson. Allir eru hjartanlega velkomnir. Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arfur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar.

Birna Hjaltadóttir, 9/3 2006

Fræðslumorgunn á Æskulýðsdegi

Barnaréttur-foreldraréttur.

Á fræðslumorgnum í Hallgrímskirkju hafa í vetur verið fluttir nokkrir fyrirlestrar um börn og uppeldi sem er framlag kirkjunnar til átaksins Verndum bernskuna. Á fræðslumorgni næsta sunnudag, 5. mars kl. 10.00 verður enn einn sem tengist þessu efni. Þar mun umboðsmaður barna, Ingibjörg Rafnar, flytja fyrirlestur um efnið Barnaréttur-foreldraréttur. Í erindi sínu mun Ingibjörg ræða rétt barna gagnvart foreldrum sínum og forráðamönnum og rétt foreldra gagnvart börnum sínum og stjórnvöldum. Skýrt er kveðið á um uppeldisrétt og ábyrgð foreldra í alþjóðasamþykktum og verður gerð grein fyrir gildi þeirra í íslensku réttarkerfi. Á undanförnum árum hafa réttindi barna verið mjög í brennidepli og réttindi þeirra við ýmsar aðstæður bætt verulega. Uppeldisréttur og umönnunarskylda foreldra hefur verið minna í umræðunni og mun Ingibjörg einnig taka þetta til umræðu. Aðgangur er öllum opinn án endurgjalds.

Að fyrirlestrinum loknum hefst fjölskylduguðsþjónusta í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna og sr. Sigurðar Pálssonar. Barna og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Um kvöldið kl 20 er síðan samvera fyrir unglinga og foreldra þeirra í umsjá Magneu Sverrisdóttur, og munu unglingar sjá um dagskráratriði.

Birna Hjaltadóttir, 2/3 2006

Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju

Samkynhneigðir og kirkjan. Hver er ágreiningurinn?

Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju á sunnudag 26. febrúar kl. 10.00, mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytja erindi sem hún nefnir: Samkynhneigðir og kirkjan. Hver er ágreiningurinn? Í erindi sínu mun sr. Irma Sjöfn kappkosta að gera hlutlæga grein fyrir ólíkum sjónarmiðum hvað varðar aðkomu kirkjunnar við stofnun sambúðar samkynhneigðra. Ekki er um umræðufund að ræða heldur er hann hugsaður sem upplýsing um ólík viðhorf í viðkvæmu og mikilsverðu máli til að auðvelda fólki að taka afstöðu með upplýstum hætti.

Kl. 11.00 hefst síðan messa þar sem séra Halldór Reynisson verkefnisstjóri á biskupsstofu mun prédika og þjóna fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni. Í messunni syngur Ester Jökulsdóttir messosópran aríur úr H-moll messu Bachs. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarf hefst á sama tíma í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna.

Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá séra Ásu Bjarkar Ólafsdóttur. Organisti er Douglas A. Brotchie. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn.

Kl. 17.00 hefjast síðan tónleikarnir Trompeteria

Birna Hjaltadóttir, 23/2 2006

Trompeteria á Vetrarhátíð 2006

Sunnudag 26. febrúar kl. 17 halda Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju sem jafnframt er framlag kirkjunnar til Vetrarhátíðar í Reykjavíkurborg 2006. Flytja þeir efnisskrá sem þeir léku í Keisarasalnum í Fílharmóníunni í Sankti Pétursborg í október sl. fyrir fullu húsi áheyrenda við frábærar undirtektir. M.a. verður flutt nýtt verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson, Da Pacem Domine, ásamt sígildum perlum, Tokkötu í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti, Konsert í C-dúr eftir Antonio Vivaldi og þáttum úr Orgelsinfóníu nr. 5 op. 42 eftir Charles Marie Widor, glæsiverki eftir franska tónskáldið Pierre Max Dubois, Suite breve í C-dúr, og verki eftir Malcolm Holloway, Pastorale.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Lesa áfram …

Sverrir Jónsson, 23/2 2006

Kvenfélag Hallgrímskirkju

Fimmtudaginn 2. mars er fundur hjá kvenfélagi Hallgrímskirkju kl. 20.00. Ungmenni úr nýbúadeild Austurbæjarskóla koma í heimsókn með söng, frásögn frá eigin löndum og píanóleik. Kaffi og meðlæti. Takið með ykkur gesti.

Birna Hjaltadóttir, 22/2 2006

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...