Ný Biblíuþýðing. Hvað breytist?
Á Biblíudaginn, n.k. sunnudag kl. 10.00, mun dr. Guðrún Kvaran prófessor flytja erindi um nýja Biblíuþýðingu sem áætlað er að komi út seint á þessu ári. Unnið hefur verið að þessari þýðingu undanfarin 15 ár og margir komið að verki, þýðendur, þýðingarnefndir og umsagnaraðilar, auk þess sem þýðingartillögurnar hafa verið gefnar út jafnóðum og þannig gerðar aðgengilegar öllum sem áhuga hafa. Guðrún hefur verið formaður þýðingarnefndar Gamla testamentisins lengst af starfstíma nefndarinnar og einnig verið í þýðingarnefnd Nýja testamentisins. Biblían var síðast þýdd á íslensku fyrir tæpum eitt hundrað árum og er því fróðlergt að vita hvað breytist, bæði málfarslega og jafnvel merkingarlega vegna aukinnar þekkingar á frummálunum.
Kl. 11.00 hefst síðan messa í umsjá Hins íslenska Biblíufélags. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari, auk þess sem meðlimir í stjórn félagsins aðstoða. Á sama tíma er barnastarf í umsjón Magneu Sverrisdóttur djákna.
Birna Hjaltadóttir, 16/2 2006
Næstkomandi sunnudag kl 17.00 munu kammerkórarnir Hljómeyki og Kór Áskirkju halda saman tónleika í Hallgrímskirkju á vegum listvinafélags kirkjunnar. Á efnisskrá verður frönsk og íslensk kórtónlist eftir Claude Debussy, Francis Poulenc, Báru Grímsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur og Þorkel Sigurbjörnsson. Þar á meðal verður eitt kröfumesta kórverk síðustu aldar, Messa í G-dúr eftir Poulenc og er þetta í fyrsta sinn sem verkið er flutt hér á landi.
Lesa áfram …
Sverrir Jónsson, 16/2 2006
Samskipti foreldra og barna í Hallgrímskirkju.
Á sunnudag 12. febrúar, kl. 10.0, verður fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju. Þar mun Anna Margrét Sigurðardóttir verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla flytja erindi um samskipti foreldra og barna. Heimili og skóli hafa í sívaxandi mæli látið til sín taka á vettvangi uppeldismála og í samstarfi heimilis og skóla. Í vaxandi margmiðlunarsamfélagi er mikilvægt sem aldrei fyrr að foreldrar hafi góð og aðhaldssöm tengsl við börn sín. Erindið er framlag Hallgrímskirkju til átaksins: Verndum bernskuna.
Kl. 11.00 hefst síðan barnastarf og messa með þátttöku fermingarbarna, þar sem þau lesa ritningarlestra og flytja bænir, Drengjakór Reykjavíkur, Hallgrímskirkju syngur í messunni. Þá mun Kristján Rúnarsson menntaskólanemi leika á flautu. Prestur er Sr. Sigurður Pálsson, barnastarfið annast Magnes Sverrisdóttir djákni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Birna Hjaltadóttir, 9/2 2006
Miðvikudaginn 15. febrúar kl. 14 verður opið hús í Hallgrímskirkju.
Dr. Pétur Pétursson prófessor mun koma og spjalla við okkur um ástandið í samskiptum hins islamska heims og vesturlanda og svara fyrirspurnum.
Auk þess verður tónlist og veitingar (kr. 500,oo)
Allir velkomnir,
sr. Sigurður Pálsson og
Magnea Sverrisdóttir djákni
Birna Hjaltadóttir, 9/2 2006
Lux Aeterna, sem er áhugahópur um klassíska messu og iðkun gregorssöngs, stendur fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20 í Hallgrímskirkju. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Kynning og æfingar á messunum verða hálfri klukkustund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19:30 í Hallgrímskirkju.
Næsta messa verður sunnudaginn 12. febrúar kl. 20, prestur er sr. Kristján Valur Ingólfsson. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arfur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar.
Birna Hjaltadóttir, 9/2 2006
Næstkomandi sunnudag, 5. febrúar kl. 10.00 , hefjast að nýju fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju, eftir áramótahlé.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson mun þá ræða efnið: Hvað er kristinn trúarskilningur?
Hugtakið trú og merking þess að kristnum skilningi virðist oftar en ekki óljós og notkun hugtaksins þar af leiðandi fljótandi bæði í samræðum manna á milli og einnig í fjölmiðlum. Dr. Sigurjón Árni mun í fyrirlestri sínum ræða um sérstöðu trúarhugtaksins að kristnum skilningi með áherslu á evangelísk-lútherskan skilning á hugtakinu. Á stórmarkaði trúarbragðanna á Vesturlöndum er mikilvægt fyrir kristna menn að gera sér grein fyrir grundvallaratriðum eins og hér um ræðir.
Kl. 11.00 hefst síðan messa í umsjá séra Sigurðar Pálssonar og barnastarf í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Organisti við messuna er Björn Steinar Sólbergsson og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju munu leiða sönginn
Birna Hjaltadóttir, 2/2 2006
Sunnudaginn 29. janúar 2006, sem er fjórði sunnudagur eftir þrettánda, bænadagur að vetri, verður messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni og messuþjónum. Hörður Áskelsson er organisti og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Magnea Sverrisdóttir stýrir barnastarfinu. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
Ensk messa fellur niður þessa helgi, en verður 26. febr. n.k.
Birna Hjaltadóttir, 25/1 2006
Kyrrðarstundin verður hluti af Alþjóðlegu samkirkjulegu bænavikunni á Íslandi dagana 22. 29. janúar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson annast kyrrðarstundina, en að þessu sinni mun Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona og Hörður Áskelsson kantor flytja kirkjuleg verk eftir W.A.Mozart, en um þessar mundir er verið að halda upp á 250 ára afmæli Mozarts, en fæðingardagur hans er 27. janúar.
Eftir Kyrrðarstundina er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarsalnum að venju, en Kyrrðarstundir í hádegi eru alla fimmtudaga í Hallgrímskirkju.
Birna Hjaltadóttir, 24/1 2006
Nk. laugardag, 21. janúar kl. 12, heldur orgeltónleikaröðin “Klais orgelið hljómar” áfram í Hallgrímskirkju eftir nokkuð hlé. Um er að ræða stutta orgeltónleika, þar sem organistinn kynnir sjálfur verkin sem hann leikur. Guðmundur Sigurðsson organisti Bústaðakirkju og formaður Félags íslenskra organleikara er gestur Listvinafélagsins að þessu sinni. Guðmundur leikur fjölbreytta og skemmtilega orgeltónlist eftir Johann Pachelbel, Charles Ives og útsetningar á tveimur sálmalögum eftir jazzleikarann George Shearing. Ókeypis er fyrir börn og skólafólk undir 26 ára aldri. Að tónleikunum loknum verða nýbakaðar vöfflur og kaffihressing seld í suðursal kirkjunnar.
Lesa áfram …
Sverrir Jónsson, 20/1 2006
Sunnudaginn 22. janúar, sem er þriðji sunnudagur eftir þrettánda, verður messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Organisti verður Hörður Áskelsson. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Magnea Sverrisdóttir hefur umsjón með barnastarfinu. Kaffisopi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 19/1 2006