Á hádegistónleikunum, fimmtudaginn 21. júlí kl. 12, syngur bandaríski stúlknakórinn Pennsylvania Girlchoir undir stjórn Mark Anderson. Á efnisskrá kórsins eru norður-amerísk þjóðlög, negrasálmar og kirkjutónlist.
Lesa áfram …
Erla Elín Hansdóttir, 18/7 2005
Sunnudaginn 17. júlí verður messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00.
Prestsþjónustu annast sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Organisti verður Douglas Brotchie og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Auk þess munu messuþjónar annast móttöku við kirkjudyr, lestur ritningarlestra, aðstoða við útdeilingu o.fl. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
Jónanna Björnsdóttir, 13/7 2005
Á hádegistónleikum, laugardaginn 16. júlí kl. 12, leika finnsku hjónin Mannfred Gräsbeck á fiðlu og Maija Lehtonen á orgel. Undanfarin 20 ár hafa þau komið víða fram á tónleikum við góðan róm. Á aðaltónleikum helgarinnar, sunnudaginn 27. júlí kl 20, leikur Maija Lehtonen á Klaisorgelið. Báðir tónleikarnir eru styrktir af Finnsk-íslenska menningarsjóðnum.
Lesa áfram …
Erla Elín Hansdóttir, 13/7 2005
Á hádegistónleikunum, sem hefjast kl. 12, fimmtudaginn 14. júlí, leikur Douglas A Brotchie, organisti Háteigskirkju. Douglas leikur verk sem öll tengjast sumri og sól á einhvern hátt. Fyrst hljóma Sumarskissur eftir breska tónskáldið Edwin Lemare, svo Summershimmer eftir Barbara Harbach, þá Adagio úr LEstate eftir Antonio Vivaldi og lokaverkið er Hymne au soleil eftir Louis Vierne. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Erla Elín Hansdóttir, 11/7 2005
Norski orgelleikarinn Bjørn Andor Drage, organisti dómkirkjunnar í Bodø í Norður-Noregi, leikur á hádegistónleikum laugardaginn 9. júlí kl. 12 og á kvöldtónleikum sunnudaginn 10. júlí kl. 20.
Lesa áfram …
Erla Elín Hansdóttir, 8/7 2005
Sunnudaginn 10. júlí verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju. Sr. Helgi Hróbjartsson prestur Íslendinga í Noregi og kristniboði í Eþíópíu í áratugi prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni, en sr. Helgi mun ferma Daníel Adolfsson, sem fékk sína fræðslu í hópi íslenskra unglinga í Noregi s.l. vetur.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 7/7 2005
Sunnudaginn 3. júlí verður messa í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir almennan messusöng undir stjórn Mattias Wager, sem einnig verður organisti. Þá kemur í heimsókn Elverum Damekor frá Noregi og syngur í messunni og heldur stutta tónleika eftir messu. Stjórnandi kórsins er Arne Moseng og undirleikari Trond Waage. Eftir messu er að venju boðið upp á kaffisopa.
Birna Hjaltadóttir, 29/6 2005
Í tilefni Kirkjudaganna verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju sunnudaginn 26. júní, kl. 11.00 í samvinnu við söfnuði af landsbyggðinni. Sr. Elínborg Sturludóttir sóknarprestur í Grundarfirði prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Óskari H. Óskarssyni sóknarpesti í Ólafsvík og staðarpresti sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Sameiginlegur kór safnaðanna á norðanverðu Snæfellsnesi, Jöklakórinn, syngur undir stjórn Friðriks Stefánssonar organista.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 23/6 2005
S.l. 7 ár hafa verið miðnæturmessur á jónsmessunótt í Hallgrímskirkju. Árið 1998 var fyrsta prestastefna núverandi biskups og þar sem Jónsmessan var einmitt í þeirri viku var ákveðið að vera með miðnæturmessu með þátttöku presta og djákna. Að þessu sinni verður messan með hefðbundnum hætti fimmtudaginn 23. júní, kl. 23:00.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 21/6 2005
Á sunnudaginn 19. júní 2005 verður messa í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir sönginn. Kaffisopi á eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 15/6 2005