Laugardaginn 26. nóv. kl. 17.00 verður opnuð sýning í forkirkjunni á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur og Margrétar Jónsdóttur og kl. 18.00 verður aðventan hringd inn með klukkum Hallgrímskirkju.
Á fyrsta sunnudegi í aðventu 27. nóv. hefst dagskráin á Fræðslumorgni kl. 10.00, en þar ræðir dr. juris Herdís Þorgeirsdóttir um Frelsi og ábyrgð fjölmiðla. Kl. 11.00 hefst hátíðarmessa. Messan er tileinkuð aðventuboðskapnum og söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefst um allt land nú um helgina. Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson prédikar en með honum þjóna fyrir altari prestar og djákni Hallgrímskirkju ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju, Barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju og Unglingakór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson.
Kl. 14.00 verður ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar og sr. Jóns Hagbarðs Knútssonar. Organisti: Lára Bryndís Eggertsdóttir og forsöngvari Jónína Guðrún Kristinsdóttir.
Tónlistarhátíð á jólaföstu hefst þriðjudaginn 29. nóv. n.k. kl. 20.00 með tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju, sem verða endurteknir 3. og 4. des. Tónlistarhátíðin stendur til 11. des.
Birna Hjaltadóttir, 24/11 2005
Sunnudagurinn 20. nóvember, sem er síðasti sunnudagur kirkjuársins, hefst með fræðslumorgni kl. 10.00. Dr. theol Kristinn Ólason heldur erindi um tungumál bænarinnar: Hugleiðing um valda Davíðssálma.
Kl. 11.00 er messa með altarisgöngu. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Umsjón barnastarfsins er í höndum Magneu Sverrisdóttur, djákna. Á eftir messu er boðið upp á kaffisopa að venju.
Birna Hjaltadóttir, 17/11 2005
Sunnudagurinn13. nóvember, sem er tuttugasti og fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð hefst með fræðslumorgni kl. 10.00. Guðlaugur Gunnarsson, kristniboði fjallar um efnið: Með fjölskyldu í framandi heimi, en efni fræðslumorgna í haust hafa flest fjallað um málefni fjölskyldunnar.
Kl. 11.00 verður messa með altarisgöngu. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni. Fermingarbörn lesa ritningarlestra og bænir. Aðrir messuþjónar verða úr áhugahópi um kristniboð og hjálparstarf. Organisti er Hörður Áskelsson. Unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju syngja í messunni, stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Á eftir messu er kaffisopi að venju.
Birna Hjaltadóttir, 10/11 2005
Helgin og næsta vika í Hallgrímsklirkju.
Helgin hefst kl. 17.00 á laugardag með tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju og Kammersveitar Hallgrímskirkju ásamt einsöngvurum undir stjórn Harðar Áskelssonar. Flutt verða Requiem eftir Gabriel Fauré og Wolfgang Amadeus Mozart. Tónleikarnir verða einnig fluttir á sunnudag kl. 17.00 og er þegar uppselt á þá tónleika.
Á sunnudagsmorgni kl. 10.00 flytur Rannveig Guðmundsdóttir fostöðumaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar erindi um reynslu og upplifun barna við skilnað foreldra.
Guðsþjónusta á allra heilagra messu í umsjá séra Sigurðar Pálssonar hefst síðan kl. 11.00 þar sem látinna verður minnst. Á sama tíma verður barnastarf að venju.
Opið hús fyrir þá sem komnir eru af léttasta skeiði verður í safnaðarsal Hallgrímskirkju miðvikudaginn 9. nóv. n.k. kl. 14.00. Þar mun dr. Margrét Eggertsdóttir ræða um Barrokkmeistarann Hallgrím Pétursson og ungt fólk leikur á hljóðfæri. Allir eru velkomnir.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 3/11 2005
Tvær af frægustu sálumessum tónlistarsögunnar verða fluttar á tvennum tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju um næstu helgi, á laugardag kl. 17 og á allra heilagra messu, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17.00. Uppselt er á seinni tónleikana.
Á þessum degi í fyrra söng Mótettukórinn sálumessur eftir Gabriel Fauré og Maurice Duruflé við orgelundirleik Mattiasar Wagers og uppskar mikið lof. Nú verður hin undurfagra sálumessa Faurés flutt á ný, í hljómsveitarbúningi, og aftur mun tær rödd drengjasópransins Ísaks Ríkharðssonar hljóma í Pie Jesu kaflanum alþekkta.
Lesa áfram …
Sverrir Jónsson, 2/11 2005
Um þessar mundir fagnar Hallgrímssöfnuður 65 ára afmæli sínu.
Söfnuðurinn hefur frá upphafi minnst séra Hallgríms með svonefndri Hallgrímsmessu á dánardægri hans 27. október, en nú eru liðin 331 ár frá láti hans. Þessi dagur hefur jafnframt verið minningardagur um stofnun safnaðarins. Fyrir nokkrum árum var þessi minningarmessa flutt á þann sunnudag sem næstur er þeim 27. hverju sinni. Í hátíðarmessunni n.k. sunnudag kl. 11.00 mun fyrsti prestur safnaðarins dr. theol. Sigurbjörn Einarsson biskup prédika og Karl Sigurbjörnsson biskup, sem þjónaði söfnuðinum um aldafjórðungs skeið, þjóna fyrir altari ásamt prestum safnaðarins þeim séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og séra Sigurði Pálssyni. Í messunni mun biskup Íslands setja Hörð Áskelsson kantor í Hallgrímskirkju inn í embætti söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi.
Á undan messunni, kl. 10.00, er fræðslumorgunn að venju og mun Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur flytja erindi sem hún nefnir: “Hallgrímur og Brynjólfur, uppalendur á 17. öld”, en Steinunn hefur öðrum fremur rannsakað líf þeirra séra Hallgríms og Guðríðar.
Kl. 14.00 er ensk messa með altarisgöngu í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn.
Birna Hjaltadóttir, 26/10 2005
Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju n.k. sunnudag kl. 10.00 mun séra Sigurður Pálsson flytja erindi sem hann nefnir: Afi og amma - hvað kemur þeim uppeldið við? Í erindinu verða ræddar ýmsar spurningar varðandi hlutverk, réttindi og skyldur afa og ömmu varðandi uppeldi barnabarnanna svo sem: Hafa afi og amma leyfi til að skipta sér af uppeldinu? Hvaða skyldum ber þeim að gegna? Hvaða rétt hafa þau ef eitthvað kemur fyrir foreldrana? o.s.frv. Einnig verður rætt um hvernig ólíkir einstaklingar gegna þessu hlutverki. Að erindinu loknu verður svigrúm til umræðna, áður en messa hefst kl. 11.00. Messan er barna og - fjölskyldumessa í umsjá séra Sigurðar Pálssonar og Magneu Sverrisdóttur djákna. Einnig mun séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir sóknarprestur í Hrísey taka þátt í messunni og Karen Ösp Pálsdóttir verður fermd. Drengjakór Reykjavíkur, Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskelsson kantor. Að venju verður boðið upp á kaffisopa eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 20/10 2005
Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kemur þann 16. október, mun Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur, kynna niðurstöður rannsóknar um líðan reykvískra barna og hverju líðanin tengist í lífi þeirra varðandi heimilishagi, skóla og félaga. Erindið er þáttur í framlagi Hallgrímskirkju til átaksins “Verndum bernskuna” og liður í áherslu þeirri sem Þjóðkirkjan leggur á fjölskylduna á þessu starfsári.
Sunnudagur 16. október, sem er tuttugasti og fyrsti sunnudagur eftir þrenningarhátíð er guðsþjónusta kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari og honum til aðstoðar er séra Halldór Reynisson. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Að venju er kaffisopi á eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 13/10 2005
Tvær af frægustu sálumessum tónlistarsögunnar verða fluttar á tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á allra heilagra messu, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17.00.
Á þessum degi í fyrra söng Mótettukórinn sálumessur eftir Gabriel Fauré og Maurice Duruflé við orgelundirleik Mattiasar Wagers og uppskar mikið lof. Nú verður hin undurfagra sálumessa Faurés flutt á ný, í sjaldheyrðum hljómsveitarbúningi, og aftur mun tær rödd drengjasópransins Ísaks Ríkharðssonar hljóma í Pie Jesu kaflanum alþekkta.
Lesa áfram …
Sverrir Jónsson, 11/10 2005
< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Sunnudaginn 9. október hefst dagskráin í Hallgrímskirkju á fræðslumorgni sem verður í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar, en hann mun ræða um starf ísl. kirkjunnar á erlendri grund. Kl. 11. verður messa og barnastarf. Sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Magnea Sverrisdóttir djákni sér um barnastarfið. Hörður Áskelsson er organisti og stýrir söng félaga úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
Birna Hjaltadóttir, 5/10 2005