Hallgrímskirkja

 

Fræðsla og messur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 2. október

Fræðslumorgnar fyrir messu á sunnudögum hefjast 2. október kl. 10.00.

Fyrirlesari: Dr. Vilhjálmur Árnason heimskpekingur ræðir efnið Uppeldi og frelsi í neyslusamfélagi.

Messa og barnastarf kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson og hópur úr Mótettukórnum syngur. Fermingarbörn aðstoða við messuna og Magnea Sverrisdóttir djákni stýrir banrastarfinu. Kl. 18.00 verður samverustund fyrir fermingarbörnin í safnaðarsal kirkjunnar.

Kvöldmessa verður kl. 20.00 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Hulda Björk Garðarsdóttir sópran syngur einsöng við undirleik Björns Steinars Sólbergssonar, organista. Kvöldmessur eru með einföldu formi, stuttri hugvekju, heilagri kvöldmáltíð og bænastund. Bænaljós verða tendruð og þátttakendum gefst kostur á að skrifa bænir á bænaseðla.

Birna Hjaltadóttir, 29/9 2005

Fjölskyldan í fyrirrúmi - barnanna vegna

Laugardaginn 1. október verður dagskrá í Hallgrímskirkju fyrir foreldra og annað áhugafólk um uppeldi.

Börn eru velkomin og verður haft ofan af fyrir þeim meðan á dagskránni stendur.

Dagskráin verður sem hér segir:

Kl.11.00: Er kominn tími á fjölskylduna?

Elínborg Bárðardóttir læknir.

Kl. 12.00: Léttur málsverður og samverustund með börnunum.

Kl. 13.00: Tíðarandi og tilfinninga- tengsl.

Dr. Sigrún Júlíusdóttir prófessor.

Kl. 14.00: Ræðum saman: Uppeldisaðferðir foreldra og velferð barna og unglinga.

Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor.

Hægt er að sækja einstaka fyrirlestra. Allir eru velkomnir og er þátttaka ókeypis.

Birna Hjaltadóttir, 27/9 2005

Sunnudagurinn 25. september

Sunnudaginn 25. september, sem er átjandi sunnudagur eftir þrenningarhátíð verður messa og barnastarf kl. 11:00. Messan verður með hátíðlegu sniði. Barn verður borið til skírnar. Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson munu leika ásamt Herði Áskelssyni, organista. Þeir spila svítu í C eftir P. M. Dubois. Í forspil leika þeir Prélude en canon, Aríu eftir predikun og Cortege í eftirspil. Er þetta liður í undirbúningi þeirra félaga að tónleikaferð til Rússlands. Sjálfboðaliðar lesa ritningalestra og aðstoða við messugjörðina. Sr. Sigurður Pálsson þjónar fyrir altari og sr. Bára Friðriksdóttir predikar. Umsjón barnastarfs Magnea Sverrisdóttir. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Kaffisopi eftir messu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Ensk messa verður síðan kl. 14:00 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti verður Hörður Áskelsson og forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir. Messukaffi eftir ensku messuna.

Birna Hjaltadóttir, 22/9 2005

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 18. september, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 15/9 2005

Tólf sporin - andlegt ferðalag

Boðið verður upp á Tólf spora hópastarf í Hallgrímskirkju í vetur eins og undanfarna vetur. Fyrstu fjórir fundirnir sem verða < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

27. september, 4., 11. og 18. október eru kynningarfundir og eru öllum opnir. Eftir það

er unnið í lokuðum hópum í 30 vikur yfir veturinn. Fundartími er kl. 19:00-21:00 á þriðjudagskvöldum.

Tólf spora aðferðin hentar öllum sem vilja þiggja styrk trúarinnar til að vinna með tilfinningar sínar og efla þroska sinn og sjálfsþekkingu.

Vertu velkomin(n) á sporafund…….

Nánari upplýsingar á www.viniribata.is

og hjá Helgu og Magnúsi í síma 5645227

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 15/9 2005

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 11. september sem er sextándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður messa í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Að venju verður boðið upp á kaffisopa eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 8/9 2005

Nýir félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju

Mótettukór Hallgrímskirkju er að hefja sitt 24. starfsár. Kórinn getur bætt við tveimur tenórum og tveimur bössum. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Hörð Áskelsson, stjórnanda kórsins, í síma 693 6690.

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 6/9 2005

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 4. september verður messa með altarisgöngu kl. 11:00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Ágúst Ingi Ágústsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Barnastarf hefst að nýju undir stjórn Magneu Sverrisdóttur, djákna. Að venju verður boðið upp á kaffisopa eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 1/9 2005

Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju

Síðustu tveir dagar Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju verða með mjög fjölbreyttu efni.Á laugardag, kl. 12.00 á hádegi verður Tónlistarandakt með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni. Hátíðarkór Kirkjulistahátíðar syngur. Síðdegis kl. 18.00 verða kórtónleikar Hamrahlíðarkórsins og um kvöldið kl. 22.00 verður fluttur gjörningurinn Röddun í tengslum við myndverk Rúríar í kirkjunni.

Sunnudagurinn hefst með hátíðarmessu kl. 11.00. Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestunum Sigurði Pálssyni, Jóni D. Hróbjartssyni, Kristjáni V. Ingólfssyni, Báru Friðriksdóttur og Magneu Sverrisdóttur, djákna, en lesari verður Sigurður Björnsson. Frumflutt verður verkið Drottinn er styrkur minn fyrir sópran, kór, 12 málmblásara, pákur og orgel eftir John A. Speight. Flytjendur verða Elín Ósk Óskarsdóttir, Mótettukór Hallgrímskirkju, Eggert Pálsson slagverksleikari og málmblásarasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. Þá mun gestakór Kirkjulistahátíðar, Kór Dómkirkunnar í Osló syngja og m.a. flytja Mótettu eftir F.Mendelssohn með Hátíðarkór Kirkjulistahátíðar. Stjórnandi dómkórsins er Terje Kvarm. Dómkórinn í Osló mun halda tónleika síðar um daginn, kl. 17.00, en þá verður flutt Matteusarpassía eftir Trond Kverno. Ensk messa verður kl. 14.00 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Guðrún Finnbjarnardóttir verður forsöngvari og Hörður Áskelsson leikur á orgelið.

Birna Hjaltadóttir, 25/8 2005

Messur og helgihald á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju

Dagana 20.-28. ágúst verður Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju með afar fjölbreyttri dagskrá, en þetta er 10. Kirkjulistahátíðin sem haldin er í kirkjunni.

Hátíðin verður sett á hátíðarsamkomu á laugardaginn 20. ágúst kl. 16.00 og síðan verður Listavaka unga fólksins fram eftir kvöldi en kl. 10.00 verður helgistund í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Margrét Sigurðardóttir, sópran, syngur einsöng.

Sunnudaginn 21. ágúst verður hátíðarmessa kl. 11.00. Sr. Sigurður Pálsson prédikar en með honum þjóna að messunni sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, Magnea Sverrisdóttir, djákni og fleiri messuþjónar. Sönghópurinn Voces Thules syngur og organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. David Sanger konsertorganisti frá Englandi, einn af gestum Kirkjulistahátíðar, leikur eftirspil í messunni. Sögustund verður fyrir börnin. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.

Alla daga Kirkjulistahátíðar verður helgihald, þ.e. hið hefðbundna helgihald Hallgrímskirkju í miðri viku, Bænamessa kl. 10.30 á þriðjudag og Morgunmessa kl. 08.00 á miðvikudag, þá verða Tónlistarandaktir kl. 12.00 alla dagana frá mánudegi til laugardags þar sem fjölmargir listamenn og prestar koma við sögu.

Lokadagur hátíðarinnar verður sunnudaginn 28. ágúst, en þá verður m.a. hátíðarmessa með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni o.fl.

Birna Hjaltadóttir, 18/8 2005

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...