Safnaðarstarf
Safnaðarstarfið í Hallgrímskirkju er afar fjölbreytt. Auk fjölbreytts helgihalds (sjá lista yfir messur og annað helgihald) , bjóðum við upp á samfélag og fræðslu fyrir alla aldurshópa.
Barna- og unglingastarf er í mörgum deildum og hefst það í september og lýkur í maí.
Sunnudagaskólinn verður á hverjum sunnudegi í vetur (2009-2010) kl. 11.00. Allir velkomnir.
Sögustund er fyrir börnin alla sunnudaga kl. 11.00 frá miðjum maí til ágústloka.
6 - 9 ára starf: Miðvikudagar kl. 15.15 - 16.15.
TTT (tíu til tólf ára): Fundirnir eru haldnir í kjallara kirkjunnar á þriðjudögum kl. 17.00 - 18.00.
Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk: Verður haldið á mánudögum kl. 20.00 - 22.00.
Fermingarfræðsla - sjá nánar undir “Ferming”
Foreldramorgnar - miðvikudaga kl. 10.00 - 12.00. Umsjón hefur Magnea Sverrisdóttir, djákni.
Fullorðinsfræðsla í formi fræðslumorgna á sunnudögum og kvöldnámskeiða hefst með vetrarstarfinu - sjá safnaðarstarf/fræðslumorgnar.
Starf fyrir eldri borgara er starfrækt á þriðjudögum og föstudögum kl. 11.00-14:00 frá sept. – maí í umsjón Margrétar Hróbjartsdóttur og Ásu Guðjónsdóttur. Þar er boðið upp á leikfimi, hádegismat og samfélag. Þá eru haldin “opin hús” fyrir eldri borgara einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina með fræðslu- og menningardagskrá.
Kórastarf er fyrir börn, unglinga og fullorðna. (Sjá listir).
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir afar fjölbreyttri listastarfsemi. (Sjá tengilið “Listvinafélag” til hægri á forsíðu).
Kvenfélag Hallgrímskirkju hefur fundi fyrsta laugardag í október, desember, febrúar og mars.
AA fundir eru í kórkjallara kirkjunnar á miðvikudags-, fimmtudags- og föstudagskvöldum.