Barnastarfið og messan hefjast kl. 11 sunnudaginn 2. apríl. Félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi kirkjunnar, stjórnar barnastarfinu.
Tónlistin og...
Fimmtudaginn 30. mars kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Miðvikudaginn 29. mars kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir, Mjöll Þórarinsdóttir og Katrín leikfimiskennari sjá saman um samveruna.
Verið hjartanlega velkomin.
Þriðjudaginn 28. mars kl. 10.30 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna
s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Messa og barnastarf 26. mars 2017, kl. 11.00.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða ásamt félögum úr frímúrarastúkunni Lilju. Gestakór er Cherry Creek High School Meistersingers, stjórnandi Sarah Harrison. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón...
Fimmtudaginn 23. mars kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.