Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10.
Verið hjartanlega velkomin.
Kirkjan lokar í dag kl. 15 vegna veðurs.
Kirkjan er opin þangað til en vegna veðursins er aðalhurðin lokuð. Gestir sem vilja flýja storminn þangað til geta komið inn norðan meginn inn í kirkjuna (Tækniskólameginn).
Fjölskyldumessa í Hallgrímskirkju
11. febrúar 2018 kl. 11
Umsjón Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi Hallgrímskirkju og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Barna- og unglingakórinn syngur.
Stjórnandi Ása Valgerður Sigurðardóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Messuþjónar og starfsfólk sunnudagaskólans aðstoða.
Eftir messu verður...
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
Þorrablót Kvenfélags Hallgrímskirkju
verður haldið miðvikudaginn 7. febrúar kl. 18.30 í hliðarsal kirkjunnar.
Hefðbundinn Þorramatur, söngur, gleði og gaman. Góð samvera er gulli betri.
Verð: 4500 kr.
Vinsamlegast skráið ykkur hjá kirkjuvörðum s: 5101000 eða kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is,
Guðrúnu Gunnarsdóttur...
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi.
Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Á þriðjudögum kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Jón Dalbú Hróbjartsson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.