Tónleikar með Schola cantorum á morgun

23. ágúst 2016


Á morgun, miðvikudaginn 24. ágúst kl. 12 verða sumartónleikar kammerkórsins Schola cantorum. Á efnisskránni verður m.a. Hin íðilfagra Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns. Einsöngvari er Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.

Íslensk kórtónlist hefur fengið að óma í allt sumar í Hallgrímskirkju á miðvikudögum og hefur ekki síst heillað ferðamenn upp úr skónum, sem eru afar áhugasamir um að kynnast íslenskum tónlistararfi. Á dagskrá er blanda íslenskra þjóðlaga og nýrri tónsmíða, krydduð með verkum frá barokk- og endurreisnartíma eftir Händel og Byrd.

Tónleikarnir hefjast kl. 12. Aðgöngumiðar eru seldir klukkustund fyrir tónleika í anddyri kirkjunnar og kosta kr. 2500.

Boðið er upp á kaffi og sætan bita eftir tónleikana.