Kvöldkirkja

Kyrrð, ró og íhugun ásamt óhefðbundinni tónlist fyrir kirkju.

Tilgangur kvöldkirkjunnar er að opna trúarheiminn fyrir fólki, sem finnur sig ekki í venjulegu helgihaldi kirkjunnar. Ólíkt í hefðbundnu helgihaldi geta gestir farið um kirkjurýmið setst niður eða lagst á dýnur eða kirkjubekki, kveikt á kertum eða skrifað það sem þeim liggur á hjarta á miða og sett í körfur.

Prestar Hallgrímskirkju og kirkjuhaldari, Grétar Einarsson sjá um stundina.
Sakramenti útdeilt
Tónlist: Futuregrapher og Hugi Garðarsson

Beint streymi úr Kvöldkirkjunni má finna á bak við þessa smellu


Hallgrímskirkja - Þinn íhugunarstaður!