Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Matthías Harðarson, orgel Vestmannaeyjar og Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran

Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Laugardagur 27. júlí kl. 12 
Matthías Harðarson, orgel Vestmannaeyjar
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Matthías Harðarson hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías nám á orgel hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi sem og BA námi við Listaháskóla Íslands 2020. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískan orgelleik hjá Guðnýju Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á Vélstjórn og útskrifaðist sem Vélfræðingur árið 2017. Matthías hefur lokið mastersnámi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Undir leiðsögn Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulrik Spang-Hanssen.
 

Harpa Ósk Björnsdóttir söngkona er fædd og uppalin í Kópavogi, þessa dagana er hún að ljúka mastersnámi við óperudeild bæversku Leiklistarakademíunnar August Everding, við Prinzregententheater-óperuhúsið og Tónlistarháskólann í München. Áður nam hún við Felix Mendelssohn tónlistarháskólann í Leipzig.
Í ágúst á þessu ári hefur hún störf við óperuhúsið í Basel í Sviss, þar sem hún mun syngja hlutverk Woglinde í tveimur óperum eftir Wagner, Das Rheingold og Götterdämmerungen, Frasquitu í Carmen eftir Bizet, Fuchslein í Das schlaue Füchslein eftir Janáček og Rapunzel í Into the Woods eftir Sondheim.
Fyrr í mánuðinum var Harpa í úrslitahópi söngvara í Wilhelm Stenhammar International Music Competition í Norrköping, Svíþjóð. Hún var einn sigurvegara í keppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og LHÍ, Ungir einleikarar, og hún hlaut titilinn „Rödd ársins“ í keppninni Vox Domini. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og styrki, þar má nefna styrk frá Rótarý, Ingjaldssjóði, Landsbankanum, Ýli og minningarsjóðum Jóns Stefánssonar, Vilhjálms Vilhjálmssonar og Ruthar Hermanns.Harpa hóf að læra söng á Íslandi í Langholtskirkju hjá Þóru Björnsdóttur, því næst við Söngskólann í Reykjavík og síðan í Listaháskóla Íslands hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Þóru Einarsdóttur, Hönnu Dóru Sturludóttur og Kristni Sigmundssyni.

Hún þreytti frumraun sína með Íslensku óperunni árið 2019 í hlutverki Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart. Verkefni síðasta árs voru m.a. hlutverk í óperunum Toscu við Oper Leipzig, Hans og Grétu við Oper Halle, Achill unter den Mädchen, Juditha Triumphans, 4:48 Psychosis og Zanaida við Prinzregententheater München, Töfraflautunni í Leipzig og Grimma og með Sinfóníuhljómsveit Íslands.