ARCHORA – SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Í HALLGRÍMSKIRKJU
Föstudagur 6. október kl. 18
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Bryndís Guðjónsdóttir, sópran
Kór Hallgrímskirkju
Steinar Logi Helgason, kórstjóri
Eva Ollikainen, stjórnandi
Miðar fást í kirkjunni og á https://tix.is/is/si/buyingflow/tickets/15523
Aðgangseyrir 4.900 kr
Þessir föstudagstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hallgrímskirkju eru helgaðir verkum Önnu Þorvaldsdóttur og haldnir í samstarfi við Hallgrímskirkju. Þar hljómar í upphafi hljómsveitarverkið METACOSMOS, þar sem fegurð og óreiða takast á. Þá tekur við innilegur sálmur Önnu fyrir kór, Heyr þú oss himnum á, saminn árið 2005 við sálm séra Ólafs frá Söndum sem uppi var á 17. öld.
Við tekur önnur hrífandi tónsetning Önnu á ljóði, en Ad Genua er fyrir sópran, kór og strengjasveit og er samið við texta Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Að lokum verður hljómsveitarverk Önnu, ARCHORA, flutt undir stjórn Evu Ollikainen en Eva hélt einnig um tónsprotann við heimsfrumflutning verksins á Proms, tónlistarhátíð breska ríkisútvarpsins BBC, í Royal Albert Hall sumarið 2022. Verkið var flutt í orgellausri útgáfu í Eldborg haustið 2022 en að þessu sinni fær hið glæsilega Klais-orgel Hallgrímskirkju að njóta sín.
Fleiri upplýsingar um tónleikana má finna á https://www.sinfonia.is/tonleikar-og-midasala/archora
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Kór Hallgrímskirkju
Eva Ollikainen, stjórnandi
Bryndís Guðjónsdóttir, sópran
Steinar Logi Helgason, kórstjóri