BACH Á AÐVENTUNNI
Sunnudagur 27. nóvember kl. 17
Kór Hallgrímskirkju og Barokkbandið Brák halda tónleika fyrsta sunnudag í aðventu þar sem boðið verður upp á fjölbreyttar krásir úr búri meistara Bachs. Tónleikarnir hefjast á þremur orgelforleikjum við sálmalagið Nun komm, der Heiden Heiland en það er vel þekkt á Íslandi sem Nú kemur heimsins hjálparráð. Á eftir orgelforleikjunum hljómar mótettan Lobet den Herrn, alle Heiden, þar sem kórinn svífur fimlega í fjörlegum lofsöngsdansi. Næst lætur Barokkbandið Brák og Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari ljós sitt skína í glæsilegum fiðlukonsert Bachs í a-moll.Tónleikunum lýkur á aðventukantötu Bachs, Nun komm, der Heiden Heiland (BWV 61), þar sem úrvalslið einsöngvara slæst í för með Barokkbandinu Brák og Kór Hallgrímskirkju.
Verið hjartanlega velkomin!
Hægt er að nálgast miða við innganginn og á https://tix.is/is/event/
Miðaverð 4000 kr.
Flytjendur
Kór Hallgrímskirkju
Barokkbandið Brák
Elfa Rún Kristinsdóttir, einleikari
Björn Steinar Sólbergsson, orgel
Steinar Logi Helgason, stjórnandi
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran
Eggert Reginn Kjartansson, Tenór
Fjölnir Ólafsson, barítón
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach
Nun komm, der Heiden Heiland, BWV 659
Trio super: Nun komm, der Heiden Heiland, BWV 660
Nun komm, der Heiden Heiland, BWV 661
Johann Sebastian Bach
Lobet den Herrn, alle Heiden, BWV 230
Johann Sebastian Bach
Fiðlukonsert í a-moll, BWV 1041
Johann Sebastian Bach
Nun komm, der Heiden Heiland, BWV 61