Foreldramorgnar á miðvikudögum

Foreldramorgnar á miðvikudagsmorgnum frá 10-12.

Á miðvikudagsmorgnum eru foreldramorgnar í kórkjallara Hallgrímskirkju kl. 10-12. Þessar samverur eru fyrir foreldra og börn þeirra og henta þeim sem eru í fæðingarorlofi eða eru heimavinnandi. Tilgangur foreldramorgna eru meðal annars að efla félagsleg tengsl foreldra og barna þeirra.
Það er söngstund kl. 11:00. Það er boðið upp á hressingu og stundum kemur góður gestur í heimsókn.

Foreldramorgnar eru í umsjón Ragnheiðar Bjarnadóttur píanókennara og Olgu Helgadóttur.

HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA!