HALLGRíMSKIRKJA
Hádegistónleikar / Matinée
Laugardagur 1. febrúar kl. 12.00
Eyþór Franzson Wechner organisti í Blönduóskirkju flytur verk eftir Bach, Vierne og Franck á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju.
Eyþór Franzson Wechner fæddist á Akranesi. Hann hóf orgelnám 14 ára, í fyrstu undir leiðsögn Úlriks Ólasonar en síðar hjá Birni Steinari Sólbergssyni við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Við „Hochschule für Musik und Theater Leipzig” lauk Eyþór Bachelor of Arts gráðu í orgelleik árið 2012 og Master of Arts gráðu árið 2014 við sama skóla. Helsti kennari hans í Leipzig var Prof. Stefan Engels. Eyþór er nú starfandi organisti Blönduóskirkju og nærsveita, kennir við Tónlistarskóla A-Húnavatnssýslu og við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Eyþór hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Þýskalandi, Litháen og í Ástralíu.
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangaseyrir 2.900 kr.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR!