Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin? / Hádegistónleikar - Orgel og píanó

HÁDEGISTÓNLEIKAR / MatinéeErtu búin/n að Bach-a fyrir jólin?
Laugardagur 7. desember kl. 12 / Saturday December 2nd at 12 hrs.
Tómas Guðni Eggertsson, orgel / organ
Davíð Þór Jónsson píanó / piano

Á þessum kyrrðartónleikum í aðdraganda jóla flytja Tómas Guðni Eggertsson organisti og Davíð Þór Jónsson píanisti valda jólasálmforleiki eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750). Forleikina er að finna í handritinu Orgelbüchlein, eða Lítil orgelbók, sem Felix Mendelssohn lét prenta á fyrri hluta 19. aldar.

Sálmforleikir meistara Bachs eru hér fluttir á nýstárlegan máta, sem spilafélagarnir tveir hafa þróað á undanförnum árum – og er enn í þróun – þar sem Davíð Þór spinnur á flygil kirkjunnar í kringum forleikina sem Tómas Guðni leikur á Klais-orgelið. Þá er registeringum orgelsins einnig breytt miðað við hefðbundinn flutning. Hvergi er þó hvikað frá virðingu við verkin sjálf og upphaflegt erindi þeirra.

In this meditative Christmas concert, organist Tómas Guðni Eggertsson and pianist Davíð Þór Jónsson will perform Christmas chorale preludes by Johann Sebastian Bach (1685-1750). These preludes stem from the manuscript Orgelbüchlein, or The Little Organ Book, which was printed by Felix Mendelssohn in the first half of the 19th century.

The two musicians have over the past years developed an innovative way to present the chorale preludes by their beloved friend Bach – a style that is in fact still evolving. Davíð Þór improvises on the church's grand piano around the preludes played by Tómas Guðni on the Klais organ. Additionally, the organ registrations are altered from the traditional settings. However, the performers maintain full respect for the integrity and original intent of Bach’s timeless masterpieces.

Davíð Þór Jónsson (f. 1978) er meðal fremstu og fjölhæfustu tónlistarmanna landsins, jafnvígur á píanóleik, spuna, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra. Hann hefur leikið á tónlistarhátíðum víða um heim, gert tónlist og hljóðmyndir fyrir fjölda sviðsverka, kvikmyndir, útvarpsverk og sjónvarpsþætti og starfað náið með fjölda listamanna úr ólíkum geirum, má þar nefna náið samstarf hans og Ragnars Kjartanssonar. Davíð Þór hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og Grímuverðlaunin sem og alþjóðleg verðlaun fyrir kvikmyndatónlistina úr Hross í oss og Kona fer í stríð.

Tómas Guðni Eggertsson (f. 1974) lauk prófi í píanóleik frá Nýja tónlistarskólanum vorið 1996 og hélt í kjölfarið til framhaldsnáms við Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. Heimkominn lauk hann einleiksáfanga í orgelleik og kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Hann hefur starfað sem tónlistarkennari, kórstjóri og organisti. Samstarf við tónlistarmenn á borð við Dimitri Ashkenazy, Ólaf Kjartan Sigurðarson og Svein Dúu Hjörleifsson hefur leitt Tómas Guðna um ýmsar lendur tónlistarinnar, og á síðustu árum hefur samvinnan við Davíð Þór Jónsson stækkað og breikkað sviðið á alla kanta.

Miðasala hafin í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir / Admission ISK 2.900

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR Í DESEMBER!