Kvöldkirkja

Fyrsta kvöldkirkja ársins 2025.

Kvöldkirkjan er óhefðbundin stund að formi og innihaldi. Andrúmsloftið er óformlegt og afslappað.

Lýsing, tónlist og stuttar íhuganir blandast við alltumliggjandi kyrrð og ró rýmisins.

Við bjóðum þér að hugleiða, biðja, kveikja á kertum, fara á milli mismunandi stöðva í kirkjunni, skrifa niður hugsanir þínar eða bænir eða bara sitja í bekkjunum eða hvílast á dýnum í kirkjunni.

 

Samstarfsfólk í Hallgrímskirkju vottar fjölskyldu, aðstandandendum og ástvinum Árna Grétars Jóhannessonar / Futuregrapher hjartanlega samúð vegna fráfalls hans.

Hallgrímssöfnuður naut tónlistarhæfileika hans og listrænnar næmni í Kvöldkirkjunni undanfarin ár.

Við minnumst hlýju hans og næmni sem birtist í fallegri tónlistinni sem eins og læddist um kirkjuna, um háar hvelfingar í rökkvaðri kirkjunni þar sem fólk kom og naut þess að hlusta og hvílast.

Guð blessi minningu Árna Grétars, hann er Guði falinn í þökk!

Samstarfsfólk Hallgrímskirkju

Ljósmynd: Ómar Sverrisson

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN ÍHUGUNARSTAÐUR!