Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2024
Sunnudagur 11. ágúst kl. 17.00 - 18.00
Vidas Pinkevicius & Ausra Motuzaite-Pinkeviciene, orgel Litháen
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir 3.700 kr.
Dr. Vidas Pinkevicius og Dr. Ausra Motuzaite-Pinkeviciene eru konsertorganistar, tónskáld og bloggarar, þau eru höfundar bloggsins „Secrets of Organ Playing“, YouTube rásar, eru með podcast og æfingarsíðu fyrir þúsundir organista frá 89 löndum. Einnig eru þau organistar við háskólann í Vilnius og leiða orgelstofu háskólans „Unda Maris“. Á 27 árum saman hafa þau haldið yfir 300 tónleika í ýmsum löndum Evrópu og Bandaríkjanna. Ef þau eru ekki að spila á pípuorgel má finna þau sitjandi við gömul fótstigin harmóníum.
“Baltic Reverie“ er grípandi og samstillt orgeldúó sem fléttar saman tónlistarstíla ólíkra tónskálda sem koma frá löndunum í kringum Eystrasaltið. Efnisskrá tónleikanna býður upp á ferð um fjölbreytt menningarlandslag Finnlands, Svíþjóðar, Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Þýskalands og Danmerkur. Þessi tónlistarferð birtir einstaka arfleifð og listræna tjáningu þessara þjóða sem sýnir einleiksorgelverk sem endurspegla hefðir þeirra, stíl og sögu.
Til að heiðra íslenska menningu munu þau flytja tónlist eftir Hildigunni Rúnarsdóttur tónskáld.