8.00 Hátíðarguðsþjónusta
Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni og messuþjónum. Messuþjónar aðstoða. Páskatónlist, m.a. páskahelgileikur úr Hólabók frá 1589 fluttur af Kór Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
11.00 Hátíðarmessa
Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Eiríki Jóhannssyni og messuþjónum. Páskatónlist. Kór Hallgrímskirkju og stjórnandi Steinar Logi Helgason. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Lexía: Slm 118.14-24
Drottinn er styrkur minn og lofsöngur,
hann varð mér til hjálpræðis.
Fagnaðar- og siguróp kveða við í tjöldum réttlátra:
„Hægri hönd Drottins vinnur máttarverk,
hægri hönd Drottins er upphafin,
hægri hönd Drottins vinnur stórvirki.“
Ég mun eigi deyja heldur lifa
og kunngjöra dáðir Drottins.
Drottinn hefur hirt mig harðlega
en eigi ofurselt mig dauðanum.
Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins
að ég megi ganga inn um þau og lofa Drottin.
Þetta er hlið Drottins,
réttlátir ganga þar inn.
Ég þakka þér að þú bænheyrðir mig
og komst mér til hjálpar.
Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu,
er orðinn að hyrningarsteini.
Að tilhlutan Drottins er þetta orðið,
það er dásamlegt í augum vorum.
Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði,
fögnum og verum glaðir á honum.
Pistill: 1Kor 5.7-8
Hreinsið burt gamla súrdeigið til þess að þið séuð nýtt deig enda eruð þið ósýrð brauð. Því að páskalambi okkar er slátrað sem er Kristur. Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi eða súrdeigi illsku og vonsku heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.
Guðspjall: Mrk 16.1-7
Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“