Útgáfuhóf í tilefni af tvímálaútgáfunni „Hvað verður fegra fundið?“ – 50 textum úr verkum Hallgríms Péturssonar.
Minningarár - 350
Hallgrímskirkja er helguð minningu prestsins og listaskáldsins Hallgríms Péturssonar. Á árinu 2024, 27. október, eru 350 ár liðin frá dánardægri hans. Til að heiðra minningu Hallgríms og arfleið 350 ára verður boðið upp á veglega dagskrá í Hallgrímskirkju í ár.
Dagskráin hófst í febrúar á þessu ári og er í tónum, tali og myndlist, bókaútgáfu og fræðslu tengdri viðburðum ársins. Hápunktur minningarársins er sérstök Hallgrímshátíð í lok október. Þegar nær dregur jólum verður boðið upp á dagskrá fyrir börn um Jólin hans Hallgríms.
Dagskrá
HALLGRÍMSHÁTÍÐ 20. – 27. október
Sunnudagur 20. október
Kl. 17 Tónleikar Umbra ensemble
TVÆR HLIÐAR HALLGRÍMS
Tónlistarhópurinn Umbra mun vinna með valið efni úr bókinni „Hvað verður fegra fundið?“ en bókin er í vinnslu fyrir Minningarár Hallgríms Péturssonar - 350. Bókin inniheldur andlega og veraldlega texta eftir skáldi sem valdir voru af Sr. Irmu Sjörn Óskarsdóttur, Steinunni Jóhannesdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur og Margréti Eggertsdóttur."
Veraldleg ljóð Hallgríms Péturssonar hafa ekki fengið mikla athygli í tónsköpun en eftir hann liggja ljóð og kvæði sem er magnaður spegill á merkilega ævi skáldsins og heimsmynd 17.aldar. Á tónleikunum er jöfnum höndum unnið með trúarleg og veraldleg kvæði Hallgrím - tónefni kemur úr nokkrum áttum, Þjóðlagasafni Bjarna Þorsteinssonar, lagboðum frá miðöldum og eigin tónsmíðum hópsins. Viðburðurinn á Facebook
Miðvikudagur 23. október
Kl.12 Málþing og leiðsögn um HALLGRÍMSHORFUR, myndlistarsýningu Hallgerðar Hallgrímsdóttur.
Myndlistarsýning á verkum Hallgerðar Hallgrímsdóttur, unnin út frá lífi og list Hallgríms Péturssonar og samþætt sex kirkjustöðum sem tengjast honum. Augnablik sem veita áhorfendum aðgang að hugleiðingum um líf og list tveggja einstaklinga mjög svo ólíkra tímaskeiða, en 370 ár aðskilja Hallgrím Pétursson og Hallgerði Hallgrímsdóttur. Sýningarstjóri er Inga Jónsdóttir.
Fimmtudagur 24. október
Kl. 20 Hallgrímsmessa
Kór Breiðholtskirkju, stjórnandi Örn Magnússon.
Sungið er messutón úr Graduale frá Hólum (1594) og inn í það fléttað sálmum meðal annars eftir Hallgrím Pétursson og Jón Þorsteinsson píslarvott. Ekkert hljóðfæri er notað við messugjörðina.
Föstudagur 25. október
Kl. 17:00 Útgáfuhóf í tilefni af tvímálaútgáfunni „Hvað verður fegra fundið?“ – 50 textum úr verkum Hallgríms Péturssonar.
Sunnudagur 27. október
Kl. 11 Hátíðarmessa í tilefni af vígslu Hallgrímskirkju.
Ma. frumflutt Toccata yfir Gefðu að móðurmálið mitt eftir Daníel Þorsteinsson.
Kl. 17 Hallgrímspassía Sigurðar Sævarssonar.
Flytjendur eru Kór Hallgrímskirkju og Kammersveit Reykjavíkur ásamt einsöngvurum.