Kyrrðarstund
11.10.2018
Fimmtudaginn 11. október er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.