Messa og barnastarf
Sunnudaginnn 24. mars kl. 11 - Þriðji sunnudagur í föstu
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Karítas Hrundar Pálsdóttir og...
Fræðslumorgnaröðin ,,Hvernig mæltist prestinum?" um prédikanir prestanna í Hallgrímskirkju halda áfram. Fyrirlesturinn verður haldinn í Suðursal kl. 10.
Að þessu sinni mun Ingibjörg Eyþórsdóttir, íslenskufræðingur fjalla um dr. Sigurður Pálsson. Heitt á könnunni og kleinur.
Verið hjartanlega velkomin.
Kyrrðarstund
Fimmtudaginn 21. mars kl. 12
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson, prófessor á menntavísindasvíði Háskóla Íslands, íhugar 17. passíusálm.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin!
Foreldramorgnar í kórkjallara kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krílin og krúttin.
Umsjón hafa Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Árdegismessa
miðvikudaginn 20. mars kl. 8
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messar ásamt messuþjónum. Morgunmatur eftir messu. Kjörin leið til þess að byrja daginn snemma!
Allir hjartanlega velkomnir.
Krílasálmar á morgun og alla þriðjudaga kl. 11:30 og verða út maí. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist, sálmar, þjóðlög og barnavísur eru notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.
Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með...
Þriðjudaginn 19. mars kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina.
Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.