Biblían á fræðslumorgni, messa og barnastarf sunnudaginn 14. febrúar

12. febrúar 2016
Fræðslumorgnar hefjast sunnudaginn 14. febrúar kl. 10.00.  Að þessu sinni verður fjallað um Biblíuna, gildi hennar í samtímanum að mati frummælanda, minningar þeirra um Biblíuna og áhrif hennar á líf þeirra.

Næstkomandi sunnudag mun Kristín Kristinsdóttir framhaldsskólakennari og sóknarnefndarkona í Hallgrímssókn fjalla um efnið.

Messa og barnastarf 14. febrúar kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barn borið til skírnar. Barnastarfið er í umsjá Ingu Harðardóttur. Samskot renna til Listvinafélags Hallgrímskirkju. Kaffisopi eftir messu og opnun sýningar Valgerðar Bergsdóttur í anddyri kirkjunnar.

Guðspjall: Matt 4.1-11
Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður. Þá kom djöfullinn og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá bjóð þú að steinar þessir verði að brauðum.“
Jesús svaraði: „Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði heldur á hverju því orði sem fram gengur af Guðs munni.“
Þá tekur djöfullinn Jesú með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins og segir við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá kasta þér ofan því að ritað er:
Hann mun fela þig englum sínum
og þeir munu bera þig á höndum sér
að þú steytir ekki fót þinn við steini.“
Jesús svaraði honum: „Aftur er ritað: Þú skalt ekki freista Drottins, Guðs þíns.“
Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra og segir: „Allt þetta mun ég gefa þér ef þú fellur fram og tilbiður mig.“
En Jesús sagði við hann: „Vík brott, Satan! Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.“
Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar komu og þjónuðu honum.