Fyrsta kyrrðarstund vetrarins hefst nk. fimmtudag 19. september.
Hvern fimmtudag kl. 12 yfir vetrartímann er kyrrðarstund í hádeginu.
Organistar kirkjunnar leika tónlist á orgelið og prestar kirkjunnar leiða stutta hugleiðingu.
Eftir stundina er boðið upp á létta hádegishressingu í suðursal kirkjunnar.
Alþjóðlegur dagur friðar er laugardaginn 21. september.
Hallgrímskirkja – Staður friðar!