Gildi Íslendinga og orðin tíu

25. janúar 2019





    Eru boðorðin í Biblíunni gleðimál? Eru þau hagnýt fyrir lífið eða neikvæð bönn? Hafa fornir vegvísar Biblíunnar gildi fyrir allt fólk og á öllum tímum? Þetta eru spurningar sem við prestar Hallgrímskirkju höfum áhuga á. Við munum í prédikunum ræða um gildin í  samfélagi okkar og gildi boðorðanna í messum frá 27. janúar til 7. apríl. Verið velkomin í Hallgrímskirkju. Hvernig eru þín boðorð?





    Hvernig er ellefta boðorðið? Dr. Þórir Kr. Þórðarson kenndi gamla testamenntisfræði í HÍ og spurði nemendur sína þessarar spurningar. Nemendurnir könnuðust ekki við neitt slíkt í Biblíunni svo Þórir svaraði sjálfur: „Þið skuluð ekki vera leiðinleg!“ Og svarið og afstaðan er túlkun á boðorðunum, í fullkomnu samræmi við áherslu þeirra á að lífið eigi að vera gott og skemmtilegt. Trúarhefð Gyðinga er gleðisækin og kristnin hefur alla tíð lagt áherslu á fagnaðarerindi.





    Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson, prestar Hallgrímskirkju