Hallgrímskirkja hlaut úthlutun úr Nýjum Tónlistarsjóði.
Athöfnin fór fram í hinni nýju Tónlistarmiðstöð Íslands og veittir voru styrkir til lifandi flutnings annars vegar og hins vegar styrkir til innviða-verkefna og hlaut Hallgrímskirkja sem tónleikastaður verkefnastyrk upp á 1.000.000 kr.
Við þökkum kærlega fyrir okkur!
Fréttina í heild sinni má lesa á heimasíðu Rannís.
Hallgrímskirkja - Þinn tónleikastaður!