Kyndilmessa - Ljósganga frá Hallgrímskirkju í Dómkirkjuna í Reykjavík
31. janúar
Kyndilmessa - Ljósganga frá Hallgrímskirkju í Dómkirkjuna í Reykjavík.
Stundin hefst á bænastund í Hallgrímskirkju kl. 17:30 og svo fer ljósaganga niður Skólavörðustíg leggur af stað um 17.45. Stundinni lýkur með helgistund í Dómkirkjunni.
Borin verða lifandi ljós milli kirknanna í luktum. Ljósin tendruð í Hallgrímskirkju og göngunni lýkur í Dómkirkjunni.
Ljósagangan tengist Kyndilmessudegi sem er föstudaginn 2. febrúar). Á kyndilmessu er fagnað að 40 dagar eru frá fæðingu Jesú en þá voru kertin blessuð í kirkjunum sem nota átti næsta árið.