Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 29. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar.