Kyrrðarstund

01. maí 2018


Fimmtudaginn 3. maí er síðasta kyrrðarstundin fyrir sumarfrí. Stundin er í hádeginu kl. 12 í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.

Verið hjartanlega velkomin.