Vinkonurnar Ásrún Magnúsdóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir hafa sýnt leikverkið Ertu hér? fjórum sinnum í kórkjallaranum og er sýningin í samstarfi við Borgarleikhúsið. Staðsetningin er ekki tilviljun en þær kynntust í kirkjustarfinu. Þær hafa þekkst síðan þær voru sex ára og í leikritinu segja þær frá ævi sinni og hvernig þær hafa verið til staðar fyrir hvor aðra alla tíð. Í lok verksins leiddu þær áhorfendur upp í kirkju þar sem áhorfendur hlýddu á fallegan söng kórsins Senjorítanna