Ljósaganga UN Women á Íslandi
Þann 25. nóvember er alþjóðadagur gegn kynbundnu ofbeldi en þann dag fer fram árleg Ljósaganga UN Women á Íslandi. Í tilefni dagsins eru margar merkar byggingar á Íslandi lýstar upp í appelsínugulum lit, þar á meðal Hallgrímsskirkja sem styður málstaðinn heilshugar.
Hallgrímskirkja – Gegn ofbeldi!
Ljósagangs UN WOMEN á Íslandi
25. nóvember kl. 17.00:
Á 10 hverri mínútu er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir.
Ljósaganga UN Women á Íslandi fer fram mánudaginn 25. nóvember kl. 17:00, á Alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Dagurinn markar jafnframt upphaf 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi sem UN Women á Íslandi er í forsvari fyrir ásamt Mannréttindaskrifstofu Íslands og fjölda annarra félagasamtaka.
Yfirskrift Ljósagöngunnar í ár er Á 10 mínútna fresti er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir og mun Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona, leiða gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi. Gangan hefst klukkan 17:00 við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli, þaðan sem gengið verður suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg. Göngunni lýkur á Bríetartorgi með stuttri samverustund þar sem boðið verður upp á heitt kakó.
Sem fyrr verður Harpan lýst upp í appelsínugulum lit í tilefni dagsins, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi. Þá verða Aðalbygging Háskóla Íslands og Hallgrímskirkja einnig lýstar upp við þetta tækifæri.
Um 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi
16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember (á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi) og lýkur 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadeginum.
Yfirskrift 16 daga átaksins í ár er Every 10 Minutes, a woman is killed. #NoExcuse. UNiTE to End Violence against Women. Árhersla átaksins er á kvenmorð (e. femicide) sem eru hrottalegasta og grófasta birtingarmynd ofbeldis gegn konum og stúlkum. Árið 2023 voru að minnsta kosti 51.100 konur myrtar af maka eða nákomnum ættingja, ein kona á tíu mínútna fresti. Tíðni kvenmorða hefur farið vaxandi á heimsvísu og ekkert ríki heims er undanskilið slíkum glæpum. Ekki einu sinni Ísland.
Á 10 hverri mínútu er kona myrt vegna kyns.
Kvenmorð eru ein grófasta birtingarmynd kynbundins ofbeldis.
86% kvenna og stúlkna búa í ríkjum sem veita ekki lagalega vernd gegn kynbundnu ofbeldi.
1 af hverjum 4 unglingsstúlkum hafa verið beittar ofbeldi í nánu sambandi.
Ekkert ríki heims er laust við kvenmorð og er Ísland þar ekki undanskilið.
Stöðvum kynbundið ofbeldi!