Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjá með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Fyrir prédikun geta börnin farið í barnastarfið sem verður í Suðursalnum.