Messa og barnastarf sunnudaginn 27. janúar kl. 11

24. janúar 2019

Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Ragnheiður Bjarnadóttir og Karítas Hrundar Pálsdóttir. Skírt verður í messunni.









Frá sunnudeginum 27. janúar til 7. apríl verður þemað í sunnudagsprédikunum: Boðorðin 10. Þar verður velt vöngum yfir gildi boðorðana á 21. öldinni, eru boðorðin í Biblíunni gleðimál eða eru þau hagnýt fyrir lífið eða neikvæð bönn?





Verið velkomin til messu!





Hérna fyrir neðan er messuskráin í tölvutæku formi: