Messa og barnastarf - Visitasía biskups Íslands, konudagurinn og Biblíudagurinn
21. febrúar 2019
Dr. Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur sem prédikar. Messuþjónar aðstoða sem og prestarnir Canon Jo Spreadbury og Kitty Price. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur, stjórnandi er Hörður Áskelsson. Cantate, æskulýðskór Portsmouth Cathedral syngur, stjórnandi er David Price. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi ásamt Karítas Hrundar Pálsdóttur og Ragnheiði Bjarnadóttur.