Sunnudagurinn 22. nóvember er samkvæmt tímatali kirkjuársins sá síðasti fyrir aðventu. Messa og barnastarf hefst kl. 11.00. Inga, Rósa og Sólveig Anna sjá um barnastarfið. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Leonard Ashford þjóna í messunni ásamt hópi messuþjóna. Organisti er Hörður Áskelsson og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða söng.
Íhugunarefni sunnudagins tengist m.a. orðum úr Lúkasarguðspjalli:
Verið vel tygjuð og látið ljós yðar loga. Við hugleiðum ljósið og lífið í tengslum við atburði og áföll síðustu vikna.