Nordal í níutíu ár - Listaháskólinn og Listvinafélagið heiðra Jón Nordal
28. apríl 2016
Tónleikar í Hallgrímskirkju laugardaginn 30. apríl kl. 14 - ókeypis aðgangur.
Jón Nordal, tónskáldið sem fært hefur Íslendingum íðilfögur og hjartnæm sönglög á borð við Smávinir fagrir og Hvert örstutt spor ásamt fjölda magnaðra hljómsveitar- og kórverka, varð níræður í mars síðastliðnum. Af því tilefni helga Listaháskólinn og Listvinafélag Hallgrímskirkju Jóni næstu samstarfstónleika sína.
Þessir hátíðartónleikar verða sannarlega glæsilegir, en á þeim verða flutt bæði orgelverk, kammerverk, hljómsveitarverk og kórverk eftir Jón, þar á meðal Toccata fyrir orgel sem Steinar Logi Helgason leikur, en Steinar stjórnar einnig Kammerkór Listaháskóla Íslands í flutningi á verkinu Lux mundi. Auk þess verða flutt kammerverkin Andað á sofinn streng, Ristur og Sónata fyrir fiðlu og píanó.
Stærstu verkin á tónleikunum verða Aldasöngur í flutningi Kórs tónlistardeildar Listaháskólans undir stjórn Sigurðar Halldórssonar og Gríma Epitafion í flutningi Sinfóníettu Listaháskólans sem Guðni Franzson stjórnar. Á milli 70 og 80 tónlistarmenn taka þátt í tónleikunum alls.
Tónleikaröð þessi er samstarf Listaháskólans og Listvinafélags Hallgrímskirkju og hófst á síðasta ári, en markmiðið með samstarfinu er að kynna nemendur fyrir töfrum Klaisorgelsins og rými kirkjunnar til tónlistarflutnings og á sama tíma veita listvinum kirkjunnar tækifæri til að heyra hvað hæfileikaríkir nemendur tónlistardeildarinnar hafa fram að færa.
Umsjónarmenn tónleikanna eru Peter Maté og Sigurður Halldórsson.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og hefjast þeir kl. 14.00 laugardaginn 30. apríl.