Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2024

30. júní

Orgelsumar í Hallgrímskirkju verður haldið hátíðlegt frá 7. júlí til 25. ágúst í sumar 2024.

Sextán íslenskir og erlendir organistar leyfa Klais-orgeli og Frobenius-kórorgeli Hallgrímskirkju að hljóma á laugardögum kl. 12 og sunnudögum kl. 17 í júlí og ágúst. Dagskráin er mjög fjölbreytt og með organistunum munum við einnig fá að heyra söng, flautuleik, klarinett og selló í sumar.

Á Menningarnótt verður Orgelmaraþon þar sem frábærir organistar munu flytja orgeltónlist milli kl. 14-18. En fyrsta Orgelmaraþon Íslandssögunnar var haldið í tilefni af sextugs afmæli Björns Steinars Sólbergssonar organista í Hallgrímskirkju á Menningarnótt árið 2022. Einnig verða kórónur og fleira skemmtilegt fyrir börnin.
Orgelsumri lýkur með lokatónleikum sunnudaginn 25. ágúst kl. 17. með organistanum Nils-Henrik Asheim frá Stavanger í Noregi.

Á upphafstónleikum Orgelsumars í Hallgrímskirkju 2024 flytur Kjartan Jósefsson Ognibene organisti sem búsettur er í Danmörku verk eftir J.S. Bach, Maurice Duruflé, Jean Langlais, Jehan Alain og frumsamið verk, Gefðu að móðurmálið mitt – Choral, Canon og Toccata.

Kjartan sem fæddur er árið 1991 hefur lokið MA gráðu í orgel- og kirkjutónlist frá Konunglega danska Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn (DKDM) og hélt hann masterstónleika í Grundtvigs Kirke sumarið 2023 þar sem hann hlaut hæstu einkunn og einróma lof fyrir frammistöðuna.

Dagskrá Orgelsumars í Hallgrímskirkju 2024 má finna hér að neðan:

Sunnudagur 7. júlí kl. 17
Upphafstónleikar Orgelsmumars
Kjartan Jósefsson Ognibene, orgel Kaupmannahöfn Danmörk
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Laugardagur 13. júlí kl. 12 
Ensemble Norðsól
Svafa Þórhallsdóttir, söngur
Anne Kirstine Mathiesen, orgel
Hanna Englund, selló
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 14. júlí kl. 17
Wolfgang og Judith Portugall Bensheim Þýskaland
Wolfgang Portugall, orgel 
Judith Portugall flauta 
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Laugardagur 20. júlí kl. 12
Ágúst Ingi Ágústsson orgel Kópavogur
Aðgangseyrir  2.700 kr.

Sunnudagur 21. júlí kl. 17
Kadri Ploompuu, orgel Tallinn Toom Eistland
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Laugardagur 27. júlí kl. 12
Matthías Harðarson og Harpa Ósk Björnsdóttir
Matthías Harðarson, orgel Vestmannaeyjar
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 28. júlí kl. 17 
Maxine Thevenot, orgel Cathedral of St. John Albuquerque Bandaríkin
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Laugardagur 3. ágúst kl. 12
Elísabet Þórðardóttir og Þórður Árnason
Elísabet Þórðardóttir, orgel Laugarneskirkja
Þórður Árnason gítar
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 4. ágúst kl. 17
Thierry Escaich, orgel Notre Dame París, Frakkland
Aðgangseyrir 3.700 kr. 

Laugardagur 10. ágúst kl. 12
Tuuli Rähni og Selvadore Rähni
Tuuli Rähni, orgel Eistland - Ísland
Selvadore Rähni, klarínett
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 11. ágúst kl. 17
Vidas Pinkevicius & Ausra Motuzaite-Pinkeviciene, orgel Vilnius Litháen
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Laugardagur 17. ágúst kl. 12
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, orgel Akureyrarkirkja
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 18. ágúst kl. 17 
Kitty Kovács, orgel Landakirkja Vestmannaeyjum
Aðgangseyrir 3.700 kr

Laugardagur 24. ágúst kl. 14-18
ORGELMARAÞON Á MENNINGARNÓTT
Björn Steinar Sólbergsson, Steinar Logi Helgason, Matthías Harðarson, Kittý Kovács, Tuuli Rähni, Nils-Henrik Asheim og Elísabet Þórðardóttir.
Ókeypis aðgangur 

Sunnudagur 25. ágúst kl. 17 
Nils-Henrik Asheim, orgel Stavanger, Noregi
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Miðar eru fáanlegir við innganginn og á www.tix.is

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR