Organisti minningarkirkjunnar við Harvard Háskóla í Boston
Tónlist eftir: H. Cowell, S. Bingham, F. Price, L. Sowerby, S. Paulus, C.P. Cooman, H. Rohlig, G. Hancock, C. Hampton.
Um helgina býður Alþjóðlegt orgelsumar upp á tvenna tónleika með einum efnilegasta unga orgelleikara Bandaríkjanna, Thomas Sheehan, sem gegnir nú stöðu við Memorial Church við Harvard háskóla.
Sheehan er mikill orgelvirtútós og mun eingöngu leika verk eftir bandarísk tónskáld en það er hans hugsjón að kynna bandaríska tónlist víða um heim. Efnisskráin er afar aðgengileg og fjölbreytt og gætir þar líka m.a. áhrifa frá jazzi sem á einkar vel við núna þegar Jazzhátíð í Reykjavík stendur yfir!
Thomas Sheehan er organisti og kórstjóri við Minningarkirkjuna við Harvard háskóla auk þess að vera meðleikari Harvard Glee Club kórsins.
Áður en hann tók við þessu starfi var hann tónlistarmaður við Saint Mark kirkjuna í Fíladelfíu í Pennsylvaníu og Trinity biskupakirkjuna í Princeton í New Jersey.
Thomas útskrifaðist frá hinum heimsþekkta Curtis tónlistarháskóla í Philadelphia með lokapróf bæði í orgelleik og á sembal. Hann lauk bæði BMus og MMus frá Westminster Choir College í Princeton undir handleiðslu Ken Cowan og vinnur núna að doktorsverkefni sínu á sviði tónlistar við Boston Háskóla undir leiðsögn Peter Sykes.
2009 hlaut hann fyrstu verðlaun bæði í bandarísku Arthur Poister keppninni í orgelleik og Quimby svæðiskeppninni fyrir miðsvæði Atlantshafsstrandarinnar.
Thomas veittist sá heiður að vera boðið að halda tónleika á LandsHmóti American Guild of Organists í höfuðborginni Washington, DC árið 2010. Hann hefur haldið fjölda tónleika um Bandaríkin og í Evrópu.
Þetta er næst síðasta tónleikahelgin á Alþjóðlegu orgelsumri sem nú er haldið í 25. sinn og hafa tónleikarnir verið mjög vel sóttir og eru erlendir ferðamenn þar í miklum meirihluta þakklátra tónleikagesta.
Miðasala er við innganginn klst. fyrir tónleika og á midi.is. Smellið HÉR fyrir laugardagstónleikana og HÉRNA fyrir sunnudagstónleikana.
Miðaverð er 2000 kr á hádegistónleikana og 2.500 kr á sunnudagstónleikana.
Frítt er fyrir börn og listvini. Sjá nánar listvinafelag.is