Tónlistarhópurinn Corpo di Strumenti og altsöngkonan Hildigunnur Einarsdóttir flytja Myrkralexíur eftir Charpentier og fleiri verk. Harmljóð Jeremía urðu kveikja að sérstöku tónlistarformi í Frakklandi á 17. öld sem nefnt var leçons de ténèbres eða myrkralexíur. Þær voru í senn meinlætalegar og fágaðar og sungnar í dymbilviku. Óperuflutningur var bannaður á lönguföstu og því mátti nýta söngvara, tónskáld og tónlistarmenn, sem voru í þjónustu hirðarinnar, í kirkjunni á meðan. Sveitin Corpo di Strumenti og Hildigunnur Einarsdóttir altsöngkona spinna efnisskrána utan um Myrkralexíur eftir Marc-Antoine Charpentier, en einnig eldri harmljóðatónlist.
Flytjendur:
Hildigunnur Einarsdóttir altsöngkona,
Maude Gratton orgelleikari,
Brice Sailly semballeikari,
Mathurin Matharel pikkólósellóleikari
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari, sem jafnframt er listrænn stjórnandi.
Aðgangseyrir: 4.500 kr.
Miðasala inn á www.tix.is, í Hallgrímskirkju alla daga milli kl. 9-17 og á tónleikadegi.