Árdegismessan fellur niður og fer til Hafnarfjarðar á morgun!
13. nóvember 2018
Á morgun, miðvikudaginn 14. nóvember mun árdegismessan falla niður en miðvikudagsöfnuðurinn mun bregða sér aðeins af bæ og kíkja í Hafnarfjarðarkirkju til að eiga sameiginlega messu með vina söfnuði sínum þar. Messan hefst kl. 8.15. Allir velkomnir þangað en nánari upplýsingar veitir Sigrún Ásgeirsdóttir s: 695-1910.
Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.