Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða.
Félagar úr Schola cantorum syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Í lok athafnar verður Getsemanestund með afskrýðingu altarins. Schola cantorum syngur fagra föstutónlist. Altarisklæði og hökull eftir
Unni Ólafsdóttur verða tekinn fram til notkunar í guðþjónustu föstudagsins langa.