Spennandi tónleikar um helgina á Orgelsumri í Hallgrímskirkju

13. ágúst
Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2024

Laugardaginn 17. ágúst kl. 12.00 - 12.30 flytja Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti í Akureyrarkirkju og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands verk fyrir orgel og selló m.a. verk eftir báðar tónlistarkonurnar.

Hér má finna viðburðinn á Facebooksíðu Hallgrímskirkju.
Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á Tix.is
Aðgangseyrir 2.700 kr.

Sunnudagur 18. ágúst kl. 17.00 - 18.00
Kitty Kovács, organisti í Landakirkja Vestmannaeyjum flytur verk eftir Johann Sebastian Bach, Charles-Marie Widor, Zoltán Kodály, Zsolt Gárdonyi og Pierre Cochereau á Klais orgelið í Hallgrímskirkju.
Hér má finna viðburðinn á Facebooksíðu kirkjunnar.

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á Tix.is
Aðgangseyrir 3.700 kr.