Fréttir: Desember 2021

Eldur, stuðlaberg og kirkja

08.04.2021
Gosið á Reykjanesi fangar athygli margra. Tugir þúsunda hafa vitjað gosstöðvanna og dramatískar myndir þaðan flakka um heiminn. Í stað þess að fara nær gosinu fór ég fjær því. Við, synir mínir, fóru í bíltúr upp á Kjalarnes og tókum myndir með miðborgina og Hallgrímskirkju í forgrunni en jarðeldinn og upplýst ský og reykbólstra í baksýn. Svo fór...

Hádegisbænir

08.04.2021
Breyting verður á fyrirkomulagi hádegisbæna frá og með föstudeginum 9. apríl. Bænirnar verða áfram kl. 12 á hádegi og verða mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Einnig verða hádegisbænir á sunnudögum kl. 12 meðan ekki er hægt að messa vegna sóttvarnaaðgerða. Prestar, djákni og starfsfólk kirkjunnar stýra bænahaldinu. Allir eru...

EXIT

04.04.2021
Ég var sjö ára gamall. Vorið var komið og börnin í götunni voru úti. Það var fjör á Tómasarhaganum. Eldri strákar, sem ég þekkti, komu og vildu sýna okkur krökkunum inn í bílskúr við götuna. Það var galsi í hópnum og ævintýraleiðangur hófst. Strákarnir opnuðu skott á bíl sem þar var og einn úr hópnum sneri sér að mér og skipaði mér að að...

Þræðir

02.04.2021
Í dagljósri kirkjunni á föstudeginum langa.  Sólinni langar ekki að skína og altari kirkjunnar er svipt sínu fegursta skarti, ljósastjökum og dúkum.  En eins og brynja og skjól er fallegt dimmsvart altarisklæðið sem myndar heild við svartan lit hökuls.  Listafallegur fíngerður útsaumurinn úr hör - og gullþræði.  Útsaumurinn myndar orð og myndir. ...

Föstudagurinn langi

01.04.2021
Hallgrímskirkja er opin á föstudaginn langa milli kl. 11.00 og 15.00. Kirkjan er opin fyrir þau sem eiga leið um, vilja koma við og dvelja um stund í þögninni.  Altarið hefur verið afskrýtt og altarisklæðið með blæðandi brjósti pelíkanans hefur verið sett upp og hökull með ísaumuðu fyrsta versi Passíusálmanna settur fram.  Hvort tveggja listaverk...

Ástarsaga

01.04.2021
„Það er gott að elska“ söng þjóðpopparinn Bubbi. „All you need is love“ sungu Bítlarnir. „Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi“ söng Páll postuli. Ástin er alls staðar og margvísleg. Ást til maka, barna, foreldra, eigin sjálfs og náttúrunnar. En hvað um Guð? Hallgrímur Pétursson var ofurpoppari þjóðarinnar, ekki bara í nokkur ár heldur um aldir....

Hvað meinti hann?

31.03.2021
Á fræðslusamverum í Hallgrímskirkju í mars var rætt um erindi Passíusálma Hallgríms Péturssonar, uppbyggingu þeirra, tilgang, listfengi, barokk, málfar og ást. Guðríður Símonardóttir, kona skáldsins, kom líka við sögu. Þrjár hljóðskrár urðu til í þessum samverum og hafa verið birtar á kirkjuvarpi þjóðkirkjunnar. Rætt er við Steinunni B....

Steinunn er Passíusálmalesari 30. mars

29.03.2021
Steinunn B. Jóhannesdóttir hefur skrifað frábærar bækur, ritgerðir og greinar um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur. Hún gerþekkir sálma Hallgríms og þessa föstu les hún Passíusálmana í Ríkisútvarpinu, rás 1. Og flesta mánudaga og þriðjudaga hefur hún lesið passíusálm í Hallgrímskirkju kl. 12 á hádegi. Þriðjudaginn 30. mars les hún...

Passíusálmar kl. 12

29.03.2021
Í hádeginu, mánudag til fimmtudags, verða síðustu fjórir passíusálmarnir lesnir. Mánudag og þriðjudag les Steinunn B. Jóhannesdóttir. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir les á miðvikudegi og á skírdegi les Axel Gunnarsson. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið á undan og eftir passíuálmalestrunum. Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 11 – 14....