Árdegismessa
11.07.2016
Árdegismessur kl. 8 á miðvikudögum halda áfram í allt sumar. Þetta er góð leið til þess að byrja daginn, þar sem sungið er, beðið og hlýtt á hugleiðingu í góðu samfélagi. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna. Morgunmatur og kaffi eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.