Vetraopnunartíminn hefst laugardaginn 1. október og lokum við kirkjunni alla daga kl 17:00. Turninn lokar kl. 16:45. Vetraopnunartíminn er í gildi október út apríl.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin til messu.
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 29. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin!
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Alla miðvikudaga kl. 8 er samfélag í kirkjunni hittist og sem kallast miðvikudagssöfnuður. Allir eru hjartanlega velkomnir. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar ásamt góðum hópi úr söfnuðinum. Sungnir eru sálmar, beðið fyrir lífi og starfi, altarisganga og stutt hugleiðing. Morgunmatur eftir messu í góðu samfélagi.
Verið hjartanlega velkomin.
Starf eldri borgara er á morgun, þriðjudaginn 27. september. Hist er í kórkjallaranum kl. 11 13 þar sem ýmislegt er á dagskránni t.d. leikfimi, spjall og ávallt er endað á súpu. Mjöll Þórarinsdóttir og Helga Þorvaldsdóttir sjá um stundina.
Verið hjartanlega velkomin.
Á morgun, þriðjudaginn 27. september kl. 10.30 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Mánudaginn 26. september er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.
English below:
Ensk messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 14, 25. September. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir.
Service with Holy Communion in Hallgrimskirkja 25. September at 2 pm. Rev. Bjarni Þór Bjarnason will preach and...