Messa og barnastarf
12. nóvember 2017 kl. 11
Tuttugasti og þriðji sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Kristniboðsdagurinn
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson.
Umsjá með barnastarfi hafa Rósa Árnadóttir, Karítas Hrundar...
verður haldinn fimmtudaginn 23. nóvember kl. 19:00.
Á fundinum verður hin hefðbundna hangikjötsveisla ásamt söng, upplestri og gleði.
Verð kr. 3.900 á manninn.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 20. nóvember hjá kirkjuvörðum í síma 5101000 eða kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is, á netfangið gudrun.gunnarsdottir1@gmail.com eða hjá Ásu í síma...
Fimmtudaginn 9. nóvember kl. 12 er kyrrðarstund í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi.
Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.
Á miðvikudagasmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Á þriðjudögum kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.