Hátíðarmessa & Kantötuguðþjónusta
Sunnudagurinn 29. október
HÁTÍÐARMESSA-343. ártíð Hallgríms Péturssonar
kl. 11
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og dr. Sigurður Árni Þórðarson, sem predikar. Tónlistarflutningur: Mótettukór Hallgrímskirkju, Björn Steinar Sólbergsson orgel Oddur A. Jónsson bassi og Inga Rós Ingólfsdóttir selló, stjórnandi...
Opnun á sýningunni TESUR
laugardaginn 28. október kl. 14
Tesur er þátttökugjörningur sem myndlistarkonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal standa fyrir dagana 28. 31. október.
Verkið minnir á gjörninginn þegar Lúther negldi tesurnar 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi 31.október 1517 og markaði þannig upphaf...
Sálmar á nýrri öld
föstudagurinn 27. október, kl. 20:00.
Kammerkórinn Schola cantorum syngur. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Sálmar á nýrri öld eru 26 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason fyrir kór án undirleiks. Þessir hrífandi og fjölbreyttu sálmar fjalla um lofgjörð, bæn, gleði og sorg.
Miðaverð:...
Fimmtudaginn 26. október er Vígsludagur Hallgrímskirkju. Kyrrðarstundin verður á sínum stað kl. 12 í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og Hildigunnur Einarsdóttir syngur. Eftir stundina er svo...
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi.
Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.
Á miðvikudagasmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi.
Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Á þriðjudögum kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.