Árdegismessa
25.10.2016
Miðvikudaginn 26. október kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu.
Verið hjartanlega velkomin.